Útskriftarverkið mitt er rannsókn á grafíska tungumáli prjónauppskrifta og sjónræn túlkun á mismunandi aðferðum til upplýsingagjafar.
Í verkefninu fæst ég við birtingu upplýsinga í uppskriftum og hvernig þeim er svo miðlað til almennings. Þegar það kemur að því að skrifa prjónauppskriftir er í raun ekki hægt að fylgja neinu stöðluðu tungumáli, þó að flestir notist við svipaðar leiðbeiningar. Ég get í raun og veru skrifað uppskrift hvernig sem mér lystir svo lengi sem að það sé lykill sem fylgir með.
Verkið sem ég vann er bók unnin upp úr tveimur textum, annars vegar er það sóttur texti úr fyrsta tölublaði tímaritsins hugur og hönd frá 1984 þar sem fjallað er um sögu prjóns á Íslandi og hins vegar texta eftir mig sjálfa þar sem ég rek aftur samband mitt við prjón og hvernig það leiddi mig að útskriftarverkinu sjálfu.
Horft er á textana tvo sem eins konar garn og eru þeir samofnir í gegnum bókina og þar á eftir er uppskriftin þýdd upp á nýtt og sett fram sem órætt munstur. Mér fannst mikilvægt að rekja aftur mitt persónulega samband við prjón, þar sem ég tel að jafnt sem verkin skilja eitthvað eftir í manni þarf maður sjálfur að skilja eitthvað eftir í þeim.
Hægt er að horfa á bókina sem abstrakt túlkun á rannsóknarferli mínu en hin megin stoðin í útskriftarverkinu er ferlið sjálft. Ferlið sjálft er sett fram í videoverki þar sem skjáupptökum er varpað á blaðsíðu sem hefur verið prjónuð upp úr bókinni.