Költ
Verkefni unnið í áfanganum Verksmiðjan, sem kenndur var af Arnari Frey Guðmundssyni. Í áfanganum áttum við að vinna endurmörkun fyrir hin ýmsu fyrirtæki. Ég tæklaði Bíó Paradís, þar var megin verkefnið að marka nýja stefnu Bíó Paradísar, þar sem árinu er skipt niður í sex þemu. Hið fyrsta Cult myndir frá áttunda ára-tugnum. Ég einblíndi á sérstöðu bíó-hússins sem eina listræna bíóhúsið hérlendis og leysti verkefnið með hugmyndina að "attitude-i" að leiðarljósi. Hluti af mörkuninni var bókverk þar sem kreditlistar bíómyndanna, sem sýndar voru á hátíðinni, voru teknir saman og settir upp sem sitt eigið listaverk.



